Friday, March 14, 2014

Mfl. kvenna Deildarmeistarar utand. kv. 2013-2014

Stelpurnar okkar í mfl. kv. unnu flottan sigur á Valsstúlkum í gær og eru því orðnar DEILDARMEISTARAR í utandeild. kvenna 2013-2014.   Það er erfitt að segja til um hvar styrkurinn er umfram annað.  Kannski gleðin, samheldnin, ákveðnin, trúin á eigin getu, sjálfstraustið, samstaðan, klókindi og færni þjálfaranna, viljinn til að vinna. Kannski er það þar, það að þykja betra að vinna en tapa. Vera tilbúnar að leggja það á sig sem þarf til að vinna og uppskera. Líklega er það þó sambland af öllu þessu sem skapar sigurvegara.   Eftir rúma viku er hinsvegar síðasti heimaleikur ÍR í utandeild kvenna í Íslandsmótinu áður en að úrslitakepninni kemur.  Þar verður gleði enda fer bikar á loft og á honum kemur bæði fram ÍR og  2014 !

Mfl. kv. Deildarmeistarar 2013-2014
Úrslitakeppni utandeildar kvenna verður síðan 4. Apríl og 5. Apríl og hvar annarsstaðar en í Austurberginu.   Við í heimaleikjaráði eru stolt af því að fá að taka þátt í þeirri keppni með HSÍ og þar viljum við fá annan sigur á heimavelli ykkar og okkar.   
Stelpur, takk fyrir frábæra skemmtun í gær þetta kvöld var ykkar þið eruð frábærar og vel að þessu komnar !!


Kveðja
Heimaleikjaráð ÍR Handbolta

http://www.ir.is/Deildir/Handbolti/Frettir/Lesafrett/irhandboltimflkvennadeildarmeistarar

No comments:

Post a Comment