Wednesday, June 1, 2011

Dagskrá 4 flokks kv. í sumar , æfingar, mót á gervigrasi hjá Þrótti 25-26 júní og Partille Cup Svíþjóð 3-11júlí.

Hæ hæ
Núna er sumarið farið að skýrast hjá okkur.

Í júní æfum við 2x inni og 1x úti.
Inniæfingarnar eru á mánud og miðvikudögum í Austurbergi kl.17:00 - 18:00. Útiæfingarnar verða á misjöfnum tímum. Júni mánuður kostar 3000 kr.

Við eigum pantað í æfingarferð að Garði frá föstud.10.juní - 11.juní. sú ferð kostar 1700 kr. fyrir utan mat sem þær taka með sér.

Svo er mjög sniðugt handboltamót hjá Þrótti helgina 25-26 juní. Mótið er eina handboltamótið á Íslandi þar sem leikið er utanhúss og er spilað á gervigrasi , en það er ætlað iðkendum í 4. og 5. flokki stúlkna og drengja (miðað er við aldursskiptingu síðasta vetrar). Mótið er haldið helgina fyrir Partille Cup og er því góð æfing fyrir liðin sem stefna þangað og fyrir hina sem aldrei hafa farið á Partille Cup verður þetta frábær reynsla og ótrúleg skemmtun.

Hvert lið fær minnst 4 leiki sem að eru spilaðir í 2x15min. Eins og á partille, svo á laugard.kvöld er þeim boðið í grill í laugardalnum. Þetta mót kostar 3000kr á mann

Ég þarf að staðfesta bæði Garð og Mótið sem allra fyst þannig þið verðið að senda á mig hvernig ykkur lýst á að við gerum bæði eða þá bara annað hvort.. mér finnst að ef við ætlum bara að velja annað að velja þá mótið...

Heildar kostnaður fyrir júni er þá 7.700 kr ef við tökum þátt í móti og förum að Garði ásamt æfingum í júní.


Farið verður svo til Svíþjóðar á Partille Cup sunnudaginn 3.juli um kvöldið og komið heim mánudag 11.juli um miðjan dag.

kv. Hanna Bára



Nánar um gervigrasmót 25-26 júní

Partille Cup 2011

http://irstelpur4fl.blogspot.com/

No comments:

Post a Comment