Friday, October 26, 2012

Jón Heiðar Gunnarsson - Línumaður og varnartröll í Action

Strákarnir okkar fóru í heimsókn að Hlíðarenda og gerðu þar jafntefli 22-22, í afar skemmtilegum leik þar sem við vorum aðeins sekúndubrotum frá sigri.  

Frábært að sjá alla þessa flottu stuðningsmenn sem fylgdu liðinu og þvílík stemning sem trommarar eru að ná upp hjá okkar fólki.  Eitt orð "BRILLJANT!!!"

Skemmtileg myndasería sem Aðalsteinn Jóhannsson tók af Jóni Heiðari Gunnars hér að neðan.


Boltinn kemur fljúgandi af slá eftir skot frá Bjögga , Jón Heiðar "Ready , willing and able!!" 


"Leap og faith"


Nær að stilla af byssuna og dúndrar í markið


Og stuðningsmenn okkar fara hamförum enda jafnaði hann leik með þessu marki!!!


Allar myndir sem Aðalsteinn J. tók má sjá í myndaalbúmi hér að neðan og þar er einnig flott myndasería - (myndir 42 til 54) af brotinu á Jóni Heiðrari sem endaði með því að Magnús Einarsson fékk rautt spjald.
http://www.flickr.com/photos/mainstone/page2/

Thursday, October 25, 2012

Mættu í kvöld að Hlíðarenda og þá átt þú möguleika á því að vinna frímiða á næsta heimaleik okkar á móti HK

Ef þú mætir á þennan leik í kvöld á móti Val - áttu möguleika á því að fá frímiða á næsta heimaleik okkar í Austurbergi fim. 7.nóv þegar við tökum á móti HK.

Drögum út úr lista "Mæta" af þessum leik / viðburð. Sýnum samstöðu, deilum þessari auglýsingu, mætum á leikinn og veldu "Mæti" í þessum viðburð hér að neðan !!

http://www.facebook.com/events/158198384322167/

Deildu og veldu "Mæti" "http://www.facebook.com/events/158198384322167/

Tuesday, October 23, 2012

Mættu í Vodafonehöll kl. 19:30 á fimmtud. þegar við förum í heimsókn að Hlíðarenda

Á fimmtudag kl.19:30 eigast við Valur og ÍR í N1 deild karla að Hlíðarenda. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina veið mikil skemmtun og ljóst að enginn undantekning verður á því að þessu sinni

Skyldumæting !!

Daníel Ingi Guðmundsson ÍR valinn í æfingahóp U-21 árs landsliðs karla.

 

Wednesday, October 17, 2012

Mættu í Safamýri á laugardag kl. 13:30 þegar við förum í heimsókn til FRAM í N1 Deild karla

Skilaboð frá mfl. ÍR Handbolta !!
Eftir skemmtilegan leik og frábær úrslit við FH í síðustu umferð þar sem þið áhorfendur voruð okkur strákunum sem áttundi maður viljum við hvetja ykkur í að leggja leið ykkar í Safamýrina á Laugardag þann 20 okt. og halda áfram uppteknum hætti að hvetja okkur áfram.

Þið eruð einstök og vonumst við leikmenn eftir því að þið fjölmennið í Safamýrina. Leikurinn hefst kl. 13:30 og ætlum við okkur sigur.

Með ÍR handboltakveðju.
Leikmenn ÍR MFL. karla

Þú finnur okkur á Facebook ÍR Handbolta - http://facebook.com/Handbolti

Tuesday, October 16, 2012

IR Handbolti á RUV sport 15.nóv. Flott umfjöllun Edda Sif Pálsdóttir

Flott umfjöllun um ÍR Handbolta hjá Eddu Sif Pálsdóttur í RUV Sport í gær. Skemmtilegt að sjá viðtöl við DJ Aron og Tomma í Stuðningsmannasveitinni ásamt skemmtilegum viðtölum við leikmenn og þjálfara að leik loknum. Alveg til fyrirmyndar hjá RUV og Eddu, endilega meira af þessu !!!


Sjá myndband RUV Sport hér

Friday, October 12, 2012

Viðtöl við Bjarka Sig og Jóh Heiðar eftir flottan sigur á FH

Frábær stemning í Austurbergi í kvöld, Meiriháttar hjá strákunum okkar að sigra FH 28:25 fyrir ÍR og Geðveik frammistaða STUÐNINGSMANNASVEITAR ÍR sem sló í geng !!


Bjarki viðtal á sprot.is 

Jónheiðar viðtal sport .is 

Stemningin var frábær í leikslok

ÍR sigur í N1 deildinni - ÍR 28 : FH 25

Frábær frammistaða hjá strákunum okkar í meistaraflokk. Áfram ÍR!
Hér fyrir neðan koma nokkrar umfjallanir fjölmiðla um leikinn.






Wednesday, October 10, 2012

Viðtöl við Bjarka og Stulla fyrir ÍR:FH leikinn 11/10

Það er flott stemning í liðinu okkar fyrir leikinn í kvöld á móti FH sem byrjar kl. 19:30 í Austurbergi. Við kíktum á æfingu hjá strákunum í gær og Bjarki Sig. var hress að vanda. Við fengum að vita allt um "happa nærbuxurnar" sem hann notaði í landsliðinu, og Lady Gaga datt óvænt inn í þetta stutta viðtal hjá okkur.







Við hvetjum alla til að mæta í Austurberg og taka þátt í leiknum með okkur í kvöld !!!
Fleiri viðtöl má sja á YouTube Rás ÍR Handbolta  > HÉR <

Tuesday, October 9, 2012

Mættu í Austurberg á fimmtud. kl. 19:30 þegar við tökum á móti FH í N1 Deild karla

Heimaleikur hjá mfl.ÍR á móti FH fim. 11. okt. kl. 19:30 í Austurbergi.


Við hvetjum alla til að mæta og styðja strákana okkar.  ÁFRAM ÍR!!

http://www.facebook.com/events/364648793617027/

Thursday, October 4, 2012

Akureyri - ÍR í beinni útsendingu í kvöld á SPORT TV

Viðureign Akureyri og ÍR í N1 deild karla í handbolta verður í >beinni útsendingu< í kvöld klukkan 19:00 á SPORT-TV. Útsendingin hefst um klukkan 18:50.
www.sporttv.is


Wednesday, October 3, 2012

ÍR ÚTSALA Á FARTÖLVUM

Í tilefni þess að ÍR og Omnis gengu frá styrktarsamningi um síðustu helgi vill Omnis bjóða öllum ÍR-ingum mikið lækkuð verð á fartölvum í verslun Omnis í Ármúla 11. Hægt er að sjá vöruframboðið á http://www.omnis.is/fartolvur/. ÍR útsalan er opin fram til 18 á föstudaginn 5. október.

Heimildarmaður ÍR Handbolta úr herbúðum meistaraflokks gerir upp leik á móti Haukum og hvað má gera betur á móti Akureyri. - Leikmenn ÍR (The inside report)

Vorum búnir að fara vel yfir sóknar + varnarleik Hauka vikuna fyrir leik og vissum því nokkurn veginn hvernig átti að bregðast við því sem þeir settu fram á móti okkur.    Við byrjuðum líka nokkuð vel á móti þeim enda var vörn og markvarsla til fyrirmyndar strax í byrjun leiks.
 
Um miðjan fyrri hálfleik fórum við að gera tæknifeila sóknarlega og gengu Haukar á lagið, tóku forystu og leiddu í hálfleik með 2 mörkum (10 – 12). 

Þessi mismunur hefði átt að efla okkur til dáða en hinsvegar fór það á annan veg, Haukar spíttu í lófana og gerðu mörg mörk úr hraðaupphlaupum eftir sendingar og skotfeila okkar sóknarlega.. Því var 4. marka tap niðurstaðan 24 – 28.

 
Þegar litið er yfir þetta sést að það sem felldi okkur í þessum leik voru varnarmistök sem við áttum að ráða  við,  ásamt mörgum tæknifeilum sem töldust því miður á annan tuginn sem er allt of mikið fyrir þetta lið.

Það er þó margt jákvætt í leik okkar sem við vonandi tökum með okkur norður á erfiðan útivöll Akureyrar manna nú á fimmtudag kl. 19:00, enda stefnir allt í hörkuleik þar sem við gefum ekkert eftir frekar en í öðrum leikjum.

Við erum mjög ánægðir að SportTv muni sýna frá þessum leik og vonum að sem flestir nýti sér það að og sjái frábæran handbolta beint frá Akureyri. ( Slóð http://www.sporttv.is/Ibeinni/N1deildin/
 )

Áfram ÍR !!




Leik má sjá beint  á
http://www.sporttv.is/Ibeinni/N1deildin/



Monday, October 1, 2012

OMNIS og Handknattleiksdeild ÍR skrifa undir auglýsingasamning.

Í hálfleik á leik ÍR og Hauka skrifuðu OMNIS og handknattleiksdeild undir auglýsingasamning, þar sem OMNIS verður með auglýsingar á gólf og veggi í Austurbergi sem og á alla búninga handknattleiksdeildar.

Omnis er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki með starfsstöðvar í Reykjavík, Reykjanesbæ, á Akranesi og í Borgarnesi. Fyrirtækið rekur fjórar verslanir og verkstæðisþjónustu fyrir einstaklinga á þessum svæðum, en er auk þess með öflugt fyrirtækjasvið sem sinnir rekstri tölvukerfa hjá fjölmörgum fyrirtækjum á suðvestur horni landsins.

Omnis leggur áherslu á að bjóða tæknibúnað og hugbúnaðarlausnir frá öllum helstu framleiðendum heims og vinnur náið með íslenskum dreifingar- og þjónustuaðilum þeirra.  Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns.

Heimasíða OMNIS er www.omnis.is

Erlendur Ísfeld Framkvæmdastjóri þjónustusviðs OMNIS og 
Róbert H. Hnífsdal Halldórsson fyrir framan auglýsingaskilti OMNIS

Bjarki Jóhannesson framkvæmdastjóri OMNIS og Róbert H. Hnífsdal Halldórsson handsala samninginn.