Wednesday, October 17, 2012

Mættu í Safamýri á laugardag kl. 13:30 þegar við förum í heimsókn til FRAM í N1 Deild karla

Skilaboð frá mfl. ÍR Handbolta !!
Eftir skemmtilegan leik og frábær úrslit við FH í síðustu umferð þar sem þið áhorfendur voruð okkur strákunum sem áttundi maður viljum við hvetja ykkur í að leggja leið ykkar í Safamýrina á Laugardag þann 20 okt. og halda áfram uppteknum hætti að hvetja okkur áfram.

Þið eruð einstök og vonumst við leikmenn eftir því að þið fjölmennið í Safamýrina. Leikurinn hefst kl. 13:30 og ætlum við okkur sigur.

Með ÍR handboltakveðju.
Leikmenn ÍR MFL. karla

Þú finnur okkur á Facebook ÍR Handbolta - http://facebook.com/Handbolti

No comments:

Post a Comment