Tveggja vikna handboltanámskeið 5.-18.ágúst fyrir krakka fædd 2004-1997. Æfingar standa yfir í tvær klukkustundir dag hvern og fara fram í íþróttahúsinu við Austurberg.
Skólastjóri er Sigurjón Björnsson(Sjonni)! Sjonni er hokinn af reynsu, en hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur þjálfað handbolta í 6 ár, allt frá 6. Flokki upp í 3. Flokk. Sjonni hefur spilað í meistaraflokki síðan 2006 og varð íslandmeistari með HK 2011 og bikar- og meistari meistarana með ÍR 2013. Sjonni er uppalinn ÍR-ingur og hefur alla sinn ferill leikið með ÍR utan tvö ár sem hann lék með HK.
Takmarkaður fjöldi kemst að og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Námskeiðsvikur:
5.-18. ágúst
Æfingatímar og aldursflokkar:
10-12 ára(02-04) kl. 09:00-11:00
13-14 ára(01-00) kl. 11:30-13:30
15-16 ára(99-97) kl. 13:30-15:30
Verð: 14.500 kr.
Skráning á www.ir.is
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki ÍR í síma 587-7080
ÍR Handbolti
Tuesday, July 15, 2014
Tuesday, July 1, 2014
Úrslit ÍR liða á Partille Cup 2014
Smellið á "Matches" til að sjá úrslit leikja..
Smellið á "Team information og Resaults" til að fá nánari upplýsingar um hvert lið.
Fararstjórar setja síðan inn fréttir og myndir af hópnum á Facebook ÍR Handbolta á hverjum degi þannig að við hvetjum alla til að "LIKE" þá síðu til að fá þetta beint frá þeim.
![]() |
Myndir á Facebook ÍR Handbolta |
Thursday, June 5, 2014
Jón Heiðar og Davíð áfram hjá ÍR
Jón Heiðar Gunnarsson og Davíð Georgsson hafa skrifað undir samninga um að spila áfram með ÍR á næstu leiktíð í Olís-deild karla í handknattleik. Jón Heiðar hefur verið einn aðal burðarásinn í liði ÍR síðastliðin ár eftir að hann sneri heim úr atvinnumennsku í Frakklandi. Hann er mikill varnarmaður og án efa með sterkari línumönnum í deildinni en frammistaða hans skilaði honum m.a. sæti í landsliðshóp Arons Kristjánssonar á dögunum. Davíð gegnir einnig lykilhlutverki hjá ÍR en hann er sérstaklega öflugur sóknarmaður.
Við erum búin að vinna mjög vel í leikmannamálum félagsins í vor og viljinn til þess að ná árangri er mikill,“ segir Runólfur Sveinsson formaður handknattleiksdeildar ÍR í tilkynningu frá deildinni. „Það er frábært að klára samninga við þá Davíð og Jón Heiðar. Þeir eru toppmenn með ÍR-hjartað á réttum stað.
Við erum búin að vinna mjög vel í leikmannamálum félagsins í vor og viljinn til þess að ná árangri er mikill,“ segir Runólfur Sveinsson formaður handknattleiksdeildar ÍR í tilkynningu frá deildinni. „Það er frábært að klára samninga við þá Davíð og Jón Heiðar. Þeir eru toppmenn með ÍR-hjartað á réttum stað.
Wednesday, May 14, 2014
Björgvin og Sturla áfram hjá ÍR
ÍR-ingarnir
Björgvin Þór Hólmgeirsson og Sturla Ásgeirsson hafa skrifað undir samning um að
spila áfram með ÍR á næstu leiktíð. Björgvin
hefur þó heimild til að fara í erlent félag í sumar ef tækifæri býðst. Báðir
eru þeir uppaldir hjá félaginu og léku með ÍR á síðasta keppnistímabili
og voru í lykilhlutverkum hjá liðinu sem rétt missti af
úrslitakeppninni í síðustu umferð deildarinnar.
„Ég
er mjög ánægður með að vera búinn að ganga frá samningum við þá Björgvin og
Sturlu. Þeir eru öflugir leikmenn og miklir ÍR-ingar. Við erum stórhuga fyrir
næsta tímabil og því er mikilvægt að þeir taki þátt í áframhaldandi velgengni
félagsins,“ segir Runóflur Sveinsson formaður handknattleiksdeildar ÍR.
![]() |
Sturla og Bjöggi áfram hjá okkur |
Tuesday, May 6, 2014
Eurovision eða Handbolti í kvöld ?
Eurovision eða Handbolt í kvöld ? Auðvelt val því þessir ÍR Pollar verða í Mýrinni kl. 19:30 þannig að við hvetjum alla til að mæta og sjá þá hala inn 12 stigum og tryggja sætið !! #handbolti #eurovision
Subscribe to:
Posts (Atom)